Síðastliðinn miðvikudag kynnti formaður Verkalýðsfélags Akraness nýgerðan kjarasamning við Elkem Ísland 19. apríl fyrir starfsmönnum fyrirtækisins.
Við undirritun kjarasamningsins er gefur hann starfsmönnum 17,5% að teknu tilliti til eingreiðslu sem félagið samdi sérstaklega um við fyrirtækið. Án eingreiðslu eru starfsmenn að hækka í launum frá tæpum 30.000 til 35.000 kr. á mánuði á fyrsta ári. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2011 og með eingreiðslu og afturvirkni samningsins eru starfsmenn að fá allt að 500.000 kr. greiðslu með næstu útborgun. Auk taxtahækkunar eru gerðar breytingar á bónuskerfinu í nýja samningnum, hámarksbónus getur nú gefið 13,5% en 10% áður. Einnig voru nýir þættir voru teknir inn í bónuskerfið sem gerir það að verkum að það mun gefa meira en gamla kerfið gerði.