Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.


Um síðustu mánaðarmót hóf Elín Reynisdóttir störf sem starfsendurhæfingarráðgjafi allra stéttarfélaganna á Akranesi í samstarfi við VIRK starfsendurhæfingarsjóð. Elín tók við starfinu af Björgu Bjarnadóttur sem hefur sinnt því frá upphafi, en Björg tekur nú við öðrum verkefnum á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness.
Á skrifstofu félagsins fást ennþá Veiðikort og gistimiðar á Edduhótel og Fosshótel. Útilegukortin eru hins vegar uppseld en verða aftur í boði að ári.
Fjórtán félagsmenn úr nokkrum stéttarfélögum hafa sent formönnum stéttarfélaga sem tilheyra Starfsgreinasamband Íslands bréf þar sem fram kemur að þau sé verulega ósátt við afgreiðslu á málefnum fyrrverandi framkvæmdastjóra SGS.
Þann 5. júlí síðastliðinn féll stórundarlegur dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli Þórarins Björns Steinssonar gegn Norðuráli og Sjóvá vegna slyss sem hann varð fyrir er hann var að bjarga samstarfskonu sinni sem hafði lent í því að fá 620 kg. stálbita ofan á sig. Þórarinn og samstarfsmaður hans tóku ákvörðun um það að lyfta bitanum ofan af samstarfskonunni til að hægt yrði að ná henni undan. Við þessa hetjulegu björgun varð Þórarinn fyrir alvarlegum bakmeiðslum sem hann hefur átt í síðan slysið átti sér stað og hefur m.a. verið lagður tvívegis inn á sjúkrahús sökum verkja sem rekja má til slyssins.
Rétt í þessu skrifaði formaður félagsins undir kjarasamning við Launanefnd Sveitarfélaga vegna félagsmanna sinna sem starfa hjá Akraneskaupstað og Hvalfjarðasveit. Samningurinn er að mörgu leyti sambærilegur þeim sem um var samið á hinum almenna vinnumarkaði, en reyndar var verið að breyta launatöflu þar sem lífaldurshækkanir voru lagðar af og í staðinn voru tekin upp svokölluð persónuálög.