Nú hefur félagið sent til allra félagsmanna sinna umsóknareyðublað vegna orlofshúsa sumarið 2011. Allir félagsmenn ættu að fá umsóknareyðublöðin í byrjun næstu viku. Meðfylgjandi er bæklingur sem inniheldur upplýsingar um þá bústaði sem í boði eru í sumar. Bústaðir félagsins í Húsafelli, Svínadal, Ölfusborgum og Hraunborgum eru að sjálfsögðu þar á meðal auk íbúðanna þriggja á Akureyri. Einnig hefur félagið leigt íbúð á Flateyri eins og síðasta sumar en það mæltist vel fyrir hjá félagsmönnum og var íbúðin vel nýtt. Að auki verða í boði þrír bústaðir í Biskupstungum, einn þeirra er í Úthlíð en hinir tveir eru staðsettir rétt ofan við fossinn Faxa í Tungufljóti. Í næstu viku mun einnig opnast fyrir orlofshúsaumsóknir á félagavefnum.