Stjórn og trúnaðarráð Verkalýðsfélags Akraness hélt sinn árlega jólatrúnaðarráðsfund í gærkvöldi. Formaður félagsins fór yfir kröfugerðir vegna komandi kjarasamninga og gerði grein fyrir því helsta sem gerst hefur á starfsárinu sem nú er að líða. Það kom fram í máli formanns að framundan séu afar erfiðar kjaraviðræður en eins og áður hefur komið fram þá liggur fyrir að það eru atvinnugreinar í okkar samfélagi sem eru mun betur í stakk búnar en aðrar til að mæta umtalsverðum hækkunum á launakjörum sinna starfsmanna og átti formaður þar við allar útflutningsgreinarnar. Það kom skýrt fram í máli hans að sótt verði af fullum þunga á þessar greinar, það er að segja, stóriðjurnar og fiskvinnslufyrirtækin.