Eins og fram kom hér á heimasíðunni í gær þá var fyrsti samningafundur samninganefndar Elkem Ísland og Klafa haldinn hjá Ríkissáttasemjara í dag. Sá ótrúlegi atburður átti sér stað við upphaf fundanna að þrjú stéttarfélög af þeim fimm sem aðild eiga að kjarasamningi Elkem höfðu haft samband við atvinnurekendur og Samtök atvinnulífsins og greint frá að þeir fulltrúar sem sætu í samninganefndinn væru ekki þar í þeirra umboði. Í samninganefndinni situr formaður Verkalýðsfélags Akraness, trúnaðarmaður rafiðnaðarmanna, trúnaðarmaður VR, trúnaðarmaður FIT, formaður FIT og aðaltrúnaðarmaður starfsmanna sem jafnframt er fulltrúi allra stéttarfélaga.