Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.


Bæjarstjórn Akraness boðaði til fundar í gær með formanni félagsins, þingmönnum Norðvestur-kjördæmis og stjórn HB Granda. Það er skemmst frá því að segja að stjórn HB Granda virti boð bæjarstjórnar að vettugi en sendi hins vegar forstjóra fyrirtækisins Eggert B Guðmundsson á fundinn.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum á undanförnum dögum þá er búið að boða samdrátt og lokanir hjá fiskvinnslustöðvum víða um land. Við Skagamenn teljum að með ákvörðun stjórnar HB-Granda um að segja öllum starfsmönnum landvinnslunnar upp störfum séu þeir í raun að semja lokakaflann í 100 ára atvinnusögu útgerðar og fiskvinnslu á Akranesi.