Aðalfundur Verkalýðsfélags Akraness var haldinn í dag laugardaginn 26. apríl í matstofu Fortuna í sal Sementsverksmiðjunnar. Formaður félagsins, Vilhjálmur Birgisson, flutti skýrslu stjórnar og greindi frá því helsta sem stjórn og starfsmenn fengust við á annasömu ári. Félagsmönnum fjölgaði um 722 á síðasta ári og hagnaður af rekstri sjóða félagsins nam rúmlega 77 milljónum króna, samanborið við rúmlega 54 milljónir árið á undan. Félagssjóður skilaði rekstrarafgangi upp á tæpar 23 milljónir en var rekinn með halla þegar þessi stjórn tók við í árslok 2003. Staða sjúkrasjóðs er sterk og jókst hagnaður um 30% á milli ára þrátt fyrir auknar styrkveitingar, sem jukust um 37%. Sama er upp á teninginn með aðra sjóði félagsins, Orlofssjóð og Verkfallssjóð, staða þeirra hefur styrkst verulega.