Akraness
Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.
Kt. 680269-6889
Hafa samband
- Þjóðbraut 1, 300 Akranes
- Sími 430 9900
- vlfa@vlfa.is
- Senda fyrirspurn
Afgreiðslutími
- Mánudaga–fimmtudaga
kl. 8:00–16:00 - Föstudaga
kl. 8:00–15:15
Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.

Ekkert lát er á gríðarlegu innstreymi erlends verkafólks inní landið og það á sama tíma og verulegar blikur eru á lofti á íslenskum vinnumarkaði sökum samdráttar í fiskvinnslu og byggingariðnaði eins og dæmi undanfarna vikna hafa sýnt.
Umtalsverð aukning hefur orðið á greiðslum úr sjúkrasjóði félagsins vegna meðferðar við áfengis og fíkniefnavanda. Á síðasta ári námu greiðslur vegna meðferðastyrkja tæpum 2 milljónum og jukust um greiðslunar um 70% á milli ára.
Á fundi miðstjórnar Alþýðusambands Íslands í gær sem formaður Verkalýðsfélags Akraness sat tilkynnti Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, að hann sæktist ekki eftir endurkjöri sem forseti á ársfundi ASÍ í lok október n.k. Grétar var fyrst kjörinn forseti ASÍ í maí 1996, og mun hafa gengt þessu embætti í tólf og hálft ár þegar að ársfundi kemur. Það er því ljóst að nýr forseti ASÍ verður kjörinn í lok október.