Eins og fram kom hér á heimasíðunni þá lagði Verkalýðsfélag Akraness fram kæru á hendur fyrirtækinu Formaco á föstudaginn sl.
Formaður félagsins hefur verið í nánu sambandi við Vinnumálastofnun varðandi þetta mál og hefur félagið t.d. komið öllum þeim upplýsingum sem félagið hefur aflað sér til Vinnumálastofnunar. Fram kemur í viðtali við Unni Sverrisdóttur, lögfræðing Vinnumálastofnunar, í DV í gær að stofnunin hafi í raun hvatt VLFA til að leggja fram kæru á hendur Formaco á þeirri forsendu að fyrirtækið hefur ekki skráð starfsmenn sína eins og lögin kveða á um. Lögfræðingur Vinnumálastofnunar segir í þessu sama viðtali að það virðist margt vera dularfullt hjá þessu fyrirtæki og ekkert nema gott að lögreglan skoði hugsanleg lögbrot aftur í tímann.