Forsvarsmenn Íj funduðu með trúnaðarmönnum og trúnaðartengiliðum í dag. Tilgangur með þessum fundi var að fara yfir samskiptamálin á milli stjórnenda og starfsmanna, sem því miður hafa alls ekki verið nógu góð á liðnum árum. Starfsmenn hafa kvartað yfir stórauknu álagi sem hefur lent á starfsmönnum á liðnum árum, ásamt ýmsum öðrum atriðum sem betur hefðu mátt fara í samskiptum við starfsmenn. Það er mat flestra þeirra sem sátu fundinn í dag að hann lofi nokkuð góðu, og geti leitt til þess að samskiptin á milli stjórnenda og starfsmanna geti færst til betri vegar. Forsvarsmenn Íj sýndu vilja á fundinum í dag til að leggja sitt af mörkum við að bætta samskiptin á milli stjórnenda og starfsmanna, og er það vel. Nú er ekkert annað hægt, en að vona að hugur fylgi máli hjá stjórnendum ÍJ