Gengið var frá nýjum kjarasamningi við forsvarsmenn Íslenska járnblendifélagsins á fimmta tímanum í dag. Heildarkostnaðarmat samningsins er 20,36% á samningstímanum. Samningurinn gildir frá 1. desember 2004 og til 30. nóvember 2008. Það sem er nýtt í þessum kjarasamningi er að það er tekið upp nýtt bónuskerfi sem samningsaðilar eru sammála um að geti gefið starfsmönnum 2,2% á árinu 2005 og væntingar eru um að bónusinn verði farinn að gefa um 5,64% árið 2006. Gamla bónuskerfið verður lagt niður og meðaltalsbónus síðustu ára upp á 5,44% verður fluttur inn í launataxta. Það á að vera búið að greiða atkvæði um nýjan samning fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 17. febrúar n.k. Farið verður í kynningu á kjarasamningnum á næstu dögum. Formaður félagsins hefur fundað 48 sinnum þar af 16 sinnum hjá ríkissáttasemjara, vegna þessa nýja kjarasamnings við Íslenska járnblendifélagið. Það er alveg hægt að fullyrða að gríðarleg vinna og orka hefur farið í þessa kjaradeilu. Verkalýðsfélag Akraness vill þakka trúnaðarmönnum Íj kærlega fyrir þeirra framlag sem hefur verið ómetanlegt, því að gegna starfi trúnaðarmanns getur verið afar vanþakklátt starf. Einnig vill Verkalýðsfélag Akraness þakka ríkissáttasemjara fyrir hans dyggu stjórn í þessum viðræðum og einnig hans góða starfsfólki fyrir gott samstarf.