Aðalfundur stóriðjudeildar var haldinn í kvöld, á þriðja tug félaga mættu á aðalfundinn. Dagskrá fundarins var t.d. kosning í stjórn deildarinnar. Stjórn stóriðjudeildar er þannig skipuð nú: Formaður er Tómas Andrésson, varaformaður Jón Jónsson, meðstjórnandi Páll Jónsson, varameðstjórnandi Ólafur Geir Óskarsson, ritari Leiknir Sigurbjörnsson, og vararitari er Sigurður Gunnarsson. Að kosningu lokinni fór formaður félagsins ýtarlega yfir stöðuna í kjaraviðræðunum við Norðurál, Íslenska járnblendifélagið og Sementsverksmiðjuna. Einnig gerði formaður félagsins fundarmönnum grein fyrir starfsemi félagsins, hvað hefði áunnist á liðnu ári og hver markmið stjórnar væru á þessu ári.